Það þarf að borga af lánum það ekki?

Hvernig á að borga þetta lán?  Á Jón eða séra Jón að blæða?  Hugmynd!  Loka sendiráðum og hafa ræðismenn fyrir Ísland.  Eitt faxtæki á skriftofu ætti að duga.   Við erum hvað mörg aftur! 
mbl.is Óska eftir 6 milljörðum dala
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Athugasemdir

1 Smámynd: Sævar Einarsson

Það er gjörsamlega óþolandi hvernig ríkið sólundar peningum út og suður í flottræfilshátt eins og tildæmis öll þessi sendiráð, til hvers öll þessi sendiráð ? ég tók saman smá samanburð miðað við höfðatölu okkar og höfðatölu stærri ríkja og hvað það séu mörg sendiráð á hvern einstakling, mjög sérstakar tölur svo ekki sé meira sagt:

USA er með 166 sendiráð og samkvæmt íbúafjölda þar í ársbyrjun 2008 þá er sú tala 305,429,000 og það þýðir að það er eitt sendiráð á hverja 1.839.933 einstaklinga.

Finnland er með 77 sendiráð og samkvæmt íbúafjölda þar í ársbyrjun 2008 þá er sú tala 5,322,588 og það þýðir að það er eitt sendiráð á hverja 69.124 einstaklinga.

Danmörk er með 80 sendiráð og samkvæmt íbúafjölda þar í ársbyrjun 2008 þá er sú tala 5,475,791 og það þýðir að það er eitt sendiráð á hverja 68.447 einstaklinga.

Fretland er með 146 sendiráð og samkvæmt íbúafjölda þar í ársbyrjun 2008 þá er sú tala 60,975,000 og það þýðir að það er eitt sendiráð á hverja 417.636 einstaklinga.

Ísland er með 17 sendiráð og samkvæmt íbúafjölda í ársbyrjun 2008 þá erum við 313.376 og það þýðir að það er eitt sendiráð á hverja 18.433 einstaklinga.

Mér detta orð forsetafrúarinnar strax í hug "Ísland, stórasta land í heimi"

Sævar Einarsson, 20.10.2008 kl. 14:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband